Edward the great
31.08.2007 13:51:02 / nonni

4 manna fjölskylda

Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn hefur fengið nafnið Eiríkur Frímann Jónsson


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 10:20:21 / nonni

Fótbolti

Áttum svo innilega skilið að fara áfram

„Ég er hundfúll og sársvekktur því við áttum svo innilega skilið að fara áfram. Þeir vissu ekkert hvað þeir voru að gera en það verða ákveðin atriði til þess að við töpum þessum leik," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur,

 

 

Ætli þetta flokkist þá sem fjölskylduharmleikur í keflavík???


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 08:56:13 / nonni

nýr bíll

 

=

+


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 13:17:55 / nonni

veðrið

Ef að ég væri forseti í einn dag þá, myndi ég senda

 forsetabréf uppá 365 miðla þess efnis að Siggi stormur

MÆTTI ekki segja eða gera veðurspá. Maðurinn er

holdgervingur alls þess sem að ég hata, hann segir ekki

veðurfréttir hann segir að sem að fólk vill heyra. Svo

messar þessi maður yfir fólki að það eigi að ferðast um

landið og njóta þess, og skellir sér svo til spánar í 2 vikur,

 ekki að það sé neitt að því, en í guðana bænum ekki vera

 að segja mér að ég eigi að njóta þess sem að landið hefur

 uppá að bjóða...


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 12:44:37 / nonni

Mórall Dauðans

 
Vísir, 02. júní. 2007 19:59

EM: Ótrúlegur leikur á Parken

Leikur Danmerkur og Svíðjóðar í F-riðli undankeppni EM var flautaður af eftir að danskur áhorfandi hljóp inn á völlinn og réðist að dómaranum eftir að vítaspyrna var dæmd á danann Christian Poulsen á lokamínútunni.

Svíar komust í 0-3 eftir aðeins 26 mínútna leik, en Daniel Agger minnkaði muninn fyrir leikhlé. Danir gáfust ekki upp og komu brjálaðir inn í seinni hálfleikinn og náðu að jafna um miðjan hálfleikinn. Eftir þetta voru danirnir mun hættulegri og áttu nokkur góð marktækifæri.

Það var svo á 90. mínútu sem að Christian Poulsen slær Olof Mellberg í magann inn í teig og vítaspyrna er dæmd og Poulsen fékk að líta rauða spjaldið. Reiður stuðningsmaður hljóp þá inn á völlinn og réðst að dómaranum sem varð til þess að dómarinn flautaði leikinn af og svíum var dæmdur sigurinn 0-3. Ótrúleg uppákoma sem eyðilaggði annars frábæran leik.

Oft hafa menn fengið móral en djöfulli held ég að þessi gaur muni aldrei jafna sig né fá að gleyma þessu!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 12:36:08 / nonni

Enski boltinn

Portsmouth hefur nú alltaf verið eitt af mínum uppáhalds liðum í enska boltanum :D

 

 

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 07:30:43 / nonni

bikarinn

VISABIKAR auglýsingin

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 11:17:50 / nonni

júróvision

Ég og Halldór Hrannar vinur minn vorum að ræða þetta nýja júrovision lag, og textagerð þess. Halldór sagði að þessi enski texti væri ekki svo langt frá snilldarverkinu HOLY DIVER með RONNIE JAMES DIO, þaes innahaldslaus texti sem hljómar bara kúl. Tökum dæmi úr holy diver:

Ride the tiger
You can see his stripes but you know he's clean
Oh don't you see what I mean

 Þá er það Valantine lost:

A tiger trapped inside a cage.                  
An actor on an empty stage.                    
Come see the show!  

 Og svo aftur yfir í DIO lagið WE ROCK:

They come for killing
They leave and still it seems
The cloud that's left behind
Oh, can penetrate your mind

But sail on, sing a song, carry on
Cause We Rock, We Rock, We Rock, We Rock

og svo afur Eiki Hauks:

Rock ‘n roll will heal your soul
when broken hearts lose all control

 annars dæmið þið sjálf um þetta :D góða skemmtun yfir júró....

hvor er svalari??

DIO

eða EIKI



 

          


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 20:50:45 / nonni

Betson

Ég vil bara láta fólk vita af því að ég og hann Tómas Freyr Kristjánsson vinur minn höfum gert með okkur veðmál. Og það er þannig: Ef að Liverpool vinnur ekki titil í maí, sem er þá bara evrópumeistarakeppnin eins og staðan er í dag og Liverpool mætir Chelskíj í undanúrslitum. Þá mun ég Jón Frímann Eiríksson þurfa að klæðast manchester united treyju á sjómannadaginn. En ef að liverpool vinnur þá mun Tómas Freyr Kristjánsson til heimilis að blöndubakka breiðholti þurfa að KLÆÐAST LIVERPOOL TREYJU  á sjómanndaginn.... vildi bara svona láta ykkur vita :D

» 6 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 22:17:21 / nonni

ónothæfur

Þegar ég var í stýrimannaskólanum þá fór ég á námskeið í slysavarnaskóla sjómanna og þar sem að þetta var fyrir stýrimannaskólann þá var þetta víst e-ð þróaðra heldur en venjulega. Þarna var okkur kennt að gera neyðar og viðbragðsáætlanir fyrir skip. Og þar var okkur kennt að hver maður hefði sitt hlutverk, og ef að hann hefði ekki hlutverk þá ætti að finna það fyrir hann, til að mynda að láta menn halda hurðum opnum ef að ekkert annað fyndist. Þá væru menn allavega að gera e-ð, mér finnst að allar ljósmæður og læknar ættu að fara á þetta námskeið, bara svona til að okkur tilvonandi feðrum finnist við ekki alveg ónothæfir!!! Annnars hafa allir það gott hérna Lára blómstrar og Kolbrún lætur sitt ekki eftir liggja (að vísu liggur drasl eftir hana um allt :lol: ) Og ég stend bara hérna við hurðina og stend mig flott í því....


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 15:37:13 / nonni

Ólétta

Æi stundum langar mann að segja svo mikið en nennir því engan veginn, en allavega hef ég fréttir að færa, þó að flestir viti þetta. Þá verð ég pabbi 9 ágúst með minni yndislegu kærustu Láru. Og ég hlakka ákaflega mikið til, en ég hef rekið mig á eitt í öllu þessu ferli. Tilvonandi feður eru nánast algerlega óþarfir í öllu þessu ferli sem að meðgangan er, maður mætir í mæðraskoðanir og fær einhverja bæklinga, og flestir eru þeir um kynlíf á meðgöngu. En við fórum í sónar síðasta miðvikudag og það var soldið spes að sjá barnið manns.. Annars er ég fárvekur heima og ekki alveg í stuði til að blogga e-ð


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 21:16:53 / nonni

Anna Nicole

 

Anna Nicole Smith látin

Bandaríska leikkonan og fyrirsætan Anna Nicole Smith lést í kvöld í Hollywood á Flórída í Bandaríkjunum, 39 ára að aldri. Smith fannst meðvitundarlaus á hótelherbergi á Hard Rock hótelinu í Hollywood og var flutt á sjúkrahús þar sem hún var úrskurðuð látin.

Smith eignaðist nýlega dóttur á Bahamaeyjum. Á meðan hún var að jafna sig eftir barnsburðinn lést Daniel sonur hennar.

 

Sorgardagur, farin frá er góð kona sem skapaði manni margar góðar stundir...


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 12:31:45 / nonni

gæi hadda

Eins sumum er kunnugt þá eru ég og Tómas Freyr vinur minn saman í liði í hópleik í 1x2 sem fer fram hérna í Grundarfirði, spilaður er enski seðillinn hvern laugardag og eru 6 2tryggingar leyfðar. Nóg um það allavega erum drulla uppá bak, og vil ég kenna Tómasi eingöngu um þetta þar sem að hann hefur ekkert vit á fótbolta, samanber hans 3 uppáhaldslið Manusa, Inter og Galacticos (aka real madrid). En þessi pistill er ekki um Tómas. Þeir sem að koma á þessa síðu og búast við einhveri speki frá mér sem kemur að vísu aldrei, hafa ekki farið varhluta af því að rekast á athugasemdir frá Gæa nokkrum Hadda. Það vill svo skemmtilega til að Gæi er í þessum marg umtalaða hópleik, og er í liði með Mömmu sinni. Hefur þetta lið sem að kallast því frumlega nafni “mæðginin” farið mikin í undanförnum umferðum og er svo komið að þau eru fyrir við að ofan mig og Tómas. Aldrei á ævinni hef ég tapað fyrir Garðari í nokkru því sem að við höfum att okkur kapp í, má nefna playstation leikinn FIFA 2000 þar sem að ég hafði af Garðari heila 4 bjórkassa, og gef ég honum það að hann borgaði þessa kassa og sýndi hann mikin drengskap þarna sem að ég bjóst aldrei við af hans hálfu. Netabætningar kenndi ég Garðari og er hann ávalt skrefi á eftir mér í þeim efnum,og öllu öðru sem viðkemur sjómennsku. Í knatspyrnu hef ég aldrei borið lægri hlut, má t.d benda á leikinn á sjómannadaginn í fyrra.. Meira að segja hefur mér tekist að koma hálftuggini samloku langleiðina í endaþarm Garðars, þegar að hann ætlaði að verða sniðugur og “múna” mig um borð í Hring SH 535. Þannig eftir þennan lestur ætti fólk að fara gera sér grein fyrir því að fyrir Garðari TAPA ég ekki. Þá kemur að kenningu minni um velgengni þeirra mæðgina, ég ætla að leyfa mér að STAÐHÆFA það að Garðar hefur aldrei tippað á einn einasta leik, heldur sér móðir hans um þetta allt saman (og þykir mér hún mjög getspök) Og er ég sannfærður um það að Garðar hafi fengið að vera með móður sinni í liði af vorkunn einni saman, samanber einkamálaauglýsingu Garðars í vikublað Grundarfjarðar, þar sem að hann og nokkrir aðrir sprækir drengir af Klakk SH 510 auglýstu eftir stúlkum til að fara með sér á sjómannadags dansleik, og var bæði auglýst á íslensku og pólsku. Árangur varð sá að móðir Garðars vorkenndi honum það mikið að hún hringdi í drenginn, svo að hann gæti nú sagst hafa fengið eitt símtal allavega eftir þessa auglýsingu. Þannig að ég get áfram sagst vera Garðari fremri í öllu því sem að við keppum í......

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 19:05:53 / nonni

Blogg

SVO ER SAGT AÐ MAÐUR BLOGGI ALDREI!!!

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6